Landsnet hf - Vatnshamrar- Spennistöð - Auglýsing
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um endurnýjað starfsleyfi barst 30. nóvember 2022. Í umsókn er sótt um spennistöð fyrir 132 kV og 66 kV aflspenna.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á skilyrðum fyrir stórar spennistöðvar. og almenn mengandi skilyrði. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir stórar spennistöðvar.pdf (ust.is) og Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is)
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 28. desember 2022.
Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.
Þrettándabrenna og flugeldasýning á Akranesi - Auglýsing
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir hér með meðfylgjandi starfsleyfiskilyrði vegna fyrirhugaðrar þrettándabrennu og flugeldasýningar á Akranesi. Umsækjandi er Björgunarfélag Akraness kt: 470100-3030 og ábyrgðarmaður er Ásgeir Kristinsson.
Umsókn um starfsleyfi barst þann 29 .nóvember 2022.
Í umsókn kemur fram að brennan verði eins og verið hefur við íþróttavöllinn á Jaðarsbökkum. Gert er ráð fyrir að kveikt verði í brennunni kl: 18:00 þann 6. janúar 2023. Brennuefni er timburbretti. Fyrirhuguð stærð brennu er 10 rúmmetrar og brennutími er tvær klukkustundir.
Flugeldasýningin er einnig staðsett við íþróttavöllinn á Akranesi 6. janúar 2023 kl:19 til 19:30.
Starfsleyfisskilyrði ber að auglýsa í 4 vikur og hægt er að senda inn athugasemdir til 27. desember n.k á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér er má lesa starfsleyfisskilyrði fyrir brennu Starfsleyfisskilyrði fyrir brennur.pdf (ust.is) og hér eru starfsleyfisskilyrði fyrir flugeldasýningar Skilyrði fyrir flugeldasýningar.pdf (ust.is)
Orkan ehf - Baulan Borgarlandi- Auglýsing.
Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi bensínstöðvar/sjálfsafgreiðslu á plani við Bauluna, Borgarlandi. Umsókn barst þann 11. nóvember 2022 frá Orkan ehf, kt: 6803190730. Umsækjandi fyrir hönd Orkunnar ehf er Sæþór Hallgrímsson.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gefur út starfsleyfi sem nær til afgreiðslu eldneytis. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. Fram kemur í umsókn að eldsneytisgeymar séu fjórir, einfaldir stáltankar í dúk framleiddir árið 1995. Stærð geymana er: 7000 lítra fyrir vélaolíu, 15000 lítrar fyrir díselolíu, 20000 lítrar fyrir díselolíu og 20000 lítrar fyrir bensín.Með umsókn fylgdu niðurstöður þykktarmælinga tankana frá júlí 2019.
Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi : Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is)
Starfsleyfisskilyrði fyrir bensínafgreiðslustöðina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 14. desember 2022.
Áramótabrenna á Varmalandi - Auglýsing.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir hér með meðfylgjandi starfsleyfiskilyrði vegna fyrirhugaðrar brennu á Gamlárskvöld 2022 á Varmalandi í Stafholtstungum.
Umsækjandi er Vilhjálmur Hjörleifsson kt. 240186-2929, Furuhlíð 4 Varmlandi. Ábyrgðarmaður brennu er Ásgeir Yngvi Ásgeirsson.
Umsókn um starfsleyfi barst þann 10 .nóvember 2022. Í umsókn kemur fram að brennan verði staðsett á malarplani við tjaldstæðið á Varmalandi. Stærð bálkastar er undir 6 rúmmetrar og ætlaður brennutími er 2 klst. Brennustaður er fjarri íbúðarbyggð, þ.e amk. 500 metrar eru að næsta íbúðarhúsi.
Gert er ráð fyrir kveikt verði í brennu kl: 21:00 þann 31. desember 2022.
Starfsleyfisskilyrði ber að auglýsa í 4 vikur og hægt er að senda inn athugasemdir til 8. desember n.k á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér er má lesa starfsleyfisskilyrðin Starfsleyfisskilyrði fyrir brennur.pdf (ust.is)
Áramóta- og þrettándabrenna í Stykkishólmi- Auglýsing
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir hér með meðfylgjandi starfsleyfiskilyrði vegna fyrirhugaðrar áramótabrennu og þrettándabrennu í Stykkishólmi. Umsækjandi fyrir hönd sveitarfélagana Stykkishólms og Helgafellssveitar, kt: 620269-7009, er Magnús Ingi Bæringsson.
Umsókn um starfsleyfi barst þann 9 .nóvember 2022. Í umsókn kemur fram að brennurnar eigi að vera á sama stað og fyrri ár, við tjaldstæðið í Stykkishólmi. Gert er ráð fyrir að brenna á Gamlársdag verði kl: 20:30 og á Þrettándanum 6. janúar 2023 kl: 17 eða kl:20.
Um er að ræða stóran bálköst þar sem brennutími er meira en 4 klukkustundir.
Starfsleyfisskilyrði ber að auglýsa í 4 vikur og hægt er að senda inn athugasemdir til 7. desember n.k á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér er má lesa starfsleyfisskilyrðin Starfsleyfisskilyrði fyrir brennur.pdf (ust.is)
More...
Áramótabrenna Tíðamel Reykholti - Auglýsing
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir hér með meðfylgjandi starfsleyfiskilyrði vegna fyrirhugaðrar áramótabrennu á Tíðamel við Reykholt Umsækjandi fyrir hönd Ungmennafélags Reykdæla kt: 660269-6309 er Þorvaldur Jónsson. .
Umsókn um starfsleyfi barst þann 4.nóvember 2022. Í umsókn kemur fram að: " Áramótabrenna á Tíðamel við Reykholt, söfnun á efnivið fer fram dagana 30. og 31. desember 2022. Kveikt verður í brennunni kl: 17:15 þann 31. desember 2022. "
Um er að ræða stóran bálköst þar sem brennutími er meira en 4 klukkustundir.
Starfsleyfisskilyrði ber að auglýsa í 4 vikur og hægt er að senda inn athugasemdir til 2. desember n.k á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér er má lesa starfsleyfisskilyrðin Starfsleyfisskilyrði fyrir brennur.pdf (ust.is)
Áramótabrenna á Rifi - Auglýsing
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir hér með meðfylgjandi starfsleyfi vegna fyrirhugaðrar áramótabrennu á Breið, ofan við Rif, Snæfellsbæ. Umsækjandi er Hjálmar Þ. Kristjánsson., kt. 020758-6949.
Umsókn um starfsleyfi barst þann 2.nóvember 2022. Í umsókn kemur fram að: " halda brennu á Breið fyrir ofan Rif, Snæfellsbæ og er þetta sami staður og hefur verið notaður undanfarna áratugi, ef veður leyfir. " Kveikt verður í brennu kl:18:00 31. desember 2022.
Um er að ræða stóran bálköst þar sem brennutími er meira en 4 klukkustundir. Brennustaður er fjarri íbúðabyggð.
Starfsleyfisskilyrði ber að auglýsa í 4 vikur og hægt er að senda inn athugasemdir til 1. desember n.k á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér er má lesa starfsleyfisskilyrðin Starfsleyfisskilyrði fyrir brennur.pdf (ust.is)
Kaffi ást ehf. Þvottahús Vesturlands Borgarbraut 4 Borgarnesi
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfseminni sbr. ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengungarvarnir.
Útgefandi starfsleyfis skal auglýsa tillögu að starfsleyfi í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á Almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi. Sjá hér: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi
Tillögu að starfsleyfi má sjá hér: Kaffi ást ehf. - Þvottahús Vesturlands
Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 21. júlí nk.
Running Tide Iceland ehf - Klafastaða vegi 5-9. Auglýsing
Umsókn um starfsleyfi fyrir " framleiðslu á baujum úr náttúrulegum efnum " barst 2. júní 2022. Umsækjandi er Running Tide Iceland ehf, kt: 580522-0330. Staðsetning starfseminnar er á Klafastaðavegi 5-7-9 á Grundartanga.
Í umsókn kemur fram: : " Framleiðslan nýtir viðarkurl, vatn, psyllium trefjar, til að búa baujur. Um er að ræða magnframleiðslu, og nýtum við til þess jarðvinnutæki (hjólagröfur, vörubíla, stóra kurlara, færibönd, jarðýtur og lyftara). Við tökum á móti kurlinu frá Grundartangahöfn, flytjum á lóðina, kurlum meira til að ná réttri stærð, blöndum saman í stórum blöndunartækjum (cement-mixer), og mótum úr því baujur. sumar baujurnar verða húðaðar með steinefnablöndu úr kalksteini og sementi. Á svæðinu verða hráefnin geymd, annað hvort í gámum eða í hagum utandyra, undir seglum. Starfsemin fer fram utandyra. "
Leyfi fyrir mengandi starfsemi er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998 og ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, X-viðauki grein 4.15.
Starfsleyfi mun byggja í grunnatriðum á starfsleyfisskilyrðum sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar ásamt ákvæðum frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 30. júní 2022.
Berg verktakar - Asbeströr hitaveitu. Borgarfjörður.
Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi fyrir starfsemi Berg verktaka ehf við meðhöndlun á asbest hitaveiturörum, þ.e leyfi fyrir að fjarlægja rörin og koma þeim til förgunar á viðurkenndum urðunarstað. Umsækjandi er Berg verktakar kt: 560816-1460. Umsækjandi fyrir hönd Bergs verktaka er Guðmundur Sveinsson. Umsókn barst 17. maí 2022.
Um er að ræða hitaveiturör úr fyrrum lagnaæð Veitna ohf í Borgarfirði. Í umsókn segir " Veitur eru að endurnýja asbests-aðveitulögn hitaveitu (HAB) í áföngum. Á árunum 2022-2023 stendur til að endurnýja 0,7 km í landi Varmalækjar og 3,4 km í landi Hamrar, Stóri Kroppur og Litli-Kroppur. Lögð verður ný foreinangruð stállögn og asbstlögnin fjarlægð. Berg verktakar vinnur verkið samkvæmt útboðsgögnum. ".
HeV gefur út meðfylgjandi starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlunar á asbest skv reglugerð nr. 705/2009. Leyfið er gefið út skv. og lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Starfsleyfisskilyrði fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlar asbest ber að auglýsa í minnst 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, www.hev.is, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 ( viðauki X, 9.11. ) um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Hér má sjá drög að starfsleyfi fyrir starfsemina Berg verktakar
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 15. júní 2022