Ása Hólmarsdóttir
Malarnáma Hólabrú- Steypustöðin ehf. Auglýsing
Umsókn um starfsleyfi fyrir malarnámu í Hólabrú Hvalfjarðarsveit barst þann 13. maí 2022 ásamt fylgigögnum. Umsækjandi er Steypustöðin , kt: 531093-2409.
Í umsókn kemur fram: " 14.2 skv. reglugerð : Malar-sand og leirnám. Sótt er um endurnýjun starfsleyfis fyrir malarnámuna Hólabrú í landi Innra Hólms norðan Hvalfjarðargangana. Þar er einnig til staðar verkstæðisaðstaða fyrir eigin vélar og tæki auk mötuneytis fyrir allt að 18 manns. "
Áætlað er að vinnanlegt efnismagn sé um 2.000.000 m3 og árleg efnistaka áætluð um 40.000 – 100.000 m3.
Leyfi fyrir malarnámur er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998 og ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, X-viðauki grein 2.6.
Starfsleyfi mun byggja í grunnatriðum á starfsleyfisskilyrðum sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar ásamt ákvæðum frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 10. júní 2022.
Hér er má finna gögn vegna umsóknarinnar. umsókn greinargerð afstöðumynd
Vélaverkstæði Kristjáns Borgarnesi - Auglýst starfsleyfi
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um nýtt starfsleyfi barst 4. maí 2022. Í umsókn er sótt um " Vélaverkstæði - Rennismíði".
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á skilyrðum um vélaverkstæði. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir vélaverkstæði.pdf (ust.is)
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 11. júní 2022.
Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.
Vélsmiðja Grundarfjarðar - Auglýsing starfsleyfis
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um nýtt starfsleyfi barst 9. maí 2022. Í umsókn er sótt um " vélsmiðju, bifreiðaviðgerðir og dekkjaskipti".
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á skilyrðum um bifreiðaverkstæði. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.pdf (ust.is)
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 11. júní 2022.
Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.
Akraborg Akranesi - Niðursuða sjávarfangs. Auglýsing.
Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi Akraborgar á Kalmansvöllum 6, Akranesi.-. Rekstraraðili er Akraborg kt. 510789-3939. Forsvarsmaður fyrirtækisins er Rolf Hákon Arnarsson.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um endurnýjað starfsleyfi barst þann10. september 2021 en núgildandi leyfi gildir frá 27. september 2010 til 27. september 2022, með breytingu um aukið vinnslumagn í janúar 2012. Í umsókn er sótt um " niðursuðu sjávarfangs". Niðursuðuverksmiðja sjávarfangs í Akraborg hefur verið starfrækt á Kalmansvöllum 6 í fjölda ára. Með umsókn fylgdi samantekt um stærð og gerð fráveitubúnaðar sem fyrirtækið hefur fjárfest í á síðustu árum og sett við frárennsli frá verksmiðjunni. Þar segir m.a um fráveitu-og hreinsibúnað: " Redox hreinsibúnaður sem hreinar allt vatn úr vinnslusölum áður en það fer úti í niðurföll, 2x filterX hreinsibönd frá Skaganum 3X sem grófhreinar vatn frá vinnslubúnaði og fjarlægir agnir. Mikið af innra eftirliti fyrirtækissins fer í að fylgjast með vatnsmagni og stýringum þess. Einnig hefur verið lögð mikil vinna í að minnka vatnsnotkun fyrirtækisins. Vatnsnotkun hefur minnkað kringum 50% síðasta árið. "
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á "Starfsleyfisskilyrði fyrir ýmsa matvælavinnslu" sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir ýmsa matvælavinnslu.pdf (ust.is)
Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 1. júní 2022.
Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.
Tilkynning vegna lokunar skrifstofu HeV - 28. til 29. apríl 2022
Fimmtudaginn 28. apríl og föstudaginn 29. apríl verður skrifstofa HeV lokuð vegna ráðstefnu heilbrigðisfulltrúa á Akureyri.
Vinsamlegast hafið samband í gegnum tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Aldan - Dósamóttaka, Sólbakka 4 í Borgarnesi
Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir Borgarbyggð til reksturs dósamóttöku, þ.e. móttaka á úrgangi til endurvinnslu, í afmörkuðum hluta húsnæðis að Sólbakka 4 í Borgarnesi. Sjá hér: Tillaga að starfsleyfi Öldunnar
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengungarvarnir.
Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 12. nóvember 2021. Í umsókn kemur m.a. fram að Aldan sé umboðsaðili fyrir Endurvinnsluna hf. og taki við skilagjaldskyldum drykkjarumbúðum sem hafa verið flokkaðar og taldar.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Starfsleyfið mun m.a. byggja á almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Skjal á pdf formi má sjá hér: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi
Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 4. maí 2022.
Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands 2022
Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands var haldinn í Borgarnesi 16. mars 2022.
Hér má sjá fundargerðina aðalfundur 2022 ásamt skýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2021 skýrsla 2021
Ársreikning 2021 má finna hér Ársskýrslur og ársreikningar (hev.is)
Hvannnes ehf Bifreiðaverkstæði Sólbakka 3 - Auglýsing um starfsleyfi
Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir bifreiðaverkstæði á Sólbakka 3 í Borgarnesi. Rekstraraðili er Hvannnes ehf, kt 470600-2760. Forsvarsmaður fyrirtækis er Hans Gunnar Emilsson.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 8. mars 2022. Í umsókn er sótt um " bifreiðaverkstæði, þjónusta og sala varahluta". Hvannnes ehf hefur verið með rekstur bifreiðaverkstæðis á þessum stað í fjölda ára. Leyfi var gefið út 6. apríl 2010 sem rennur út þann 6. apríl 2022.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á Almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.pdf (ust.is).
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 6. apríl 2022.
Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.
Númerslausar bifreiðar og lóðahreinsanir - Ferill máls
Númerslausar bifreiðar og lóðahreinsun.
Á fundi Heilbrigðisnefndar Vesturlands þann 7.mars 2022 var kynnt nýtt fyrirkomulag vegna álímingu á númerslausar bifreiðar og vegna lóðahreinsana. Fyrirkomulagið er í samræmi við ákvæði í reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 og í reglugerð um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003.
Í reglugerð nr. 941/2002 um hollustuhætti m.s.br. kemur fram í 18. gr, 1. mgr.: ,,Eigandi eða umráðamaður húss eða mannvirkis skal halda eigninni hreinni og snyrtilegri ásamt tilheyrandi lóð og girðingum, þannig að ekki valdi öðrum ónæði“. Í 20. gr. 1. mgr. kemur jafnframt fram: ,,Bannað er að skilja eftir, flytja, dreifa eða geyma hluti, búnað eða tæki á þann hátt að valdið geti skaða, mengun eða lýti á umhverfinu. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti“ og í 21. gr. segir ,,Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta fjarlægja lausamuni, númerslausar bifreiðar, bílflök og sambærilega hluti á almannafæri að undangenginni viðvörun, svo sem með álímingarmiða með aðvörunarorðum“.
Heimild fyrir ákvörðun um lóðahreinsun og/eða að láta fjarlægja númerslausar bifreiðar eða bílflök
17. gr. reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, með síðari breytingum:
,,Umráðamönnum lóða er skylt að halda þeim hreinum og snyrtilegum.
Heilbrigðisnefnd hefur eftirlit með almennum þrifnaði og hreinlæti utanhúss og hlutast til um að fram fari eftir þörfum almenn hreinsun lóða og lendna í þrifnaðarskyni.
Nefndin getur krafist lagfæringa og viðgerða á lóðum, girðingum og mannvirkjum, ef nauðsynlegt þykir til þrifnaðar eða ef ástand þeirra er til lýta fyrir umhverfið.
Nefndinni er heimilt að fyrirskipa hreinsun lóða og lendna og ef sérstök ástæða er til niðurrif húsa og girðinga í niðurníðslu.
Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta fjarlægja númerslausar bifreiðar og bílflök og sambærilega hluti að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða með aðvörunarorðum.
Heilbrigðisnefnd getur látið hreinsa einkalóðir á kostnað eigenda telji nefndin þess þörf vegna mengunar og óhollustu“.
Hér má sjá útgefnar leiðbeiningar um feril máls er varðar álímingar á númerslausar bifreiðar og tilkynningu um málsmeðferð. ( Ferill álíminga bílar og lóðir með mynd af miðum)
3. mars : Alþjóðlegur dagur heyrnar
Alþjóðlegur dagur heyrnar er 3. mars ár hvert og vill Heilbrigðiseftirlit Vesturlands að því tilefni hvetja alla til að kynna sér fræðsluefni á vefsvæði Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.
Á vefsvæðinu segir meðal annars:
" 3. mars ár hvert er alþjóðlegur DAGUR HEYRNAR.
Í ár er áherslan á ungt fólk og fyrirbyggjandi aðgerðir til varnar heyrnarskerðingu.Sífellt fleiri verða fyrir heyrnarskerðingu vegna of mikils hávaða og þegar heyrn hefur tapast er ekki hægt að lækna það. Að hlusta á hávær hljóð skemmir taugar í eyrum og getur leitt til heyrnartaps eða stöðugs suðs í eyrum (tinnitus). Ekki eru allir sem vita að til eru ýmis úrræði og leiðir til að minnka líkur á heyrnartapi vegna hávaða, eins og t.d. að nota hlustunartappa á tónleikum, gæta að hljóðstyrk í heyrnartólum og hversu lengi er verið að hlusta. Hvetjum til öruggra hlustunarvenja og fræðum um heyrnarvarnir. "
Sjá nánar á : Heyrnar og talmeinastöð íslands (hti.is)