Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

Ása Hólmarsdóttir

Ása Hólmarsdóttir

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir starfsemi vöruflutningamiðstöðvar að Smiðjuvöllum 15 á Akranesi. Umsækjandi er Bifreiðastöð Þórðar Þ Þórð ehf. Umsókn barst þann 20. nóvember 2020.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi vöruflutningamiðstöðva. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998 og reglugerðar nr.  550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 26. maí 2021.

 

Bifreiðastöð ÞÞÞ Smiðjuvellir 15, Akranesi

Þriðjudagur, 27 apríl 2021 11:10

HÁ Bílar ehf. Bifreiðaverkstæði - Auglýsing

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir starfsemi bifreiðaverkstæðis að Dalbraut 16 á Akranesi.  Heiti verkstæðis er HÁ Bílar.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi bifreiðaverkstæða. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 22. mars 2021 og er hér um að ræða nýja starfsemi að Dalbraut 16. HÁ Bílar ehf. - Auglýsing vegna umsóknar um starfsleyfi

 

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 25. maí 2021.

 

 

 

Hér með eru auglýst drög að tímabundu starfsleyfi fyrir Þrótt ehf  vegna flutnings á menguðum jarðvegi / jarðvegi með óvirkt spilliefni frá aðstöðu Terra á Akranesi á sorpurðunarsvæði í Álfsnesi. 

 Leyfið er gefið út skv.  lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. laga um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003,  reglugerðar nr. 1040/2016 um skrá yfir úrgangs og mat á hættulegum eiginleikum úrgangs  og reglugerðar nr.  550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Umsókn um starfsleyfi barst þann 6. apríl 2021. Umsækjandi fyrir hönd Þróttar ehf er Fannar Freyr Helgason. 

Ástæða umsóknar er óhapp sem varð við flutning á riðusmituðu sauðfé  þann 18. mars s.l. Sjá frétt á vefsvæði Matvælastofnunar.: Óhapp við flutning hræja til brennslu vegna riðu | Matvælastofnun (mast.is)

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur  skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Hér má finna drög að starfleyfi með starfsleyfisskilyrðum ásamt greinargerð. Þróttur ehf Flutningur Drög

Athugasemdir skulu berast á  This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 4. maí  2021.

Aðalfundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands var haldinn 24. mars s.l á Hótel Hamri í Borgarnesi, á fundadegi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi - SSV.

Hér má finna fundargerð aðalfundar, skýrslu stjórnar, ársreikninginn og ársskýrslu  vegna starfsins á síðasta ári. : 

Ársreikningur 2020    -  Ársskýrsla 2020  -   Aðalfundur 2021 fundargerð  -  Skýrsla stjórnar 2021

 Hér með eru auglýst drög að starfsleyfi fyrir skotæfingasvæði Skotfélags Akraness  sem staðsett er  við norðanvert Akrafjall, á landispildu úr landi Óss. 

Umsókn um starfsleyfi vegna skotsvæðis barst þann 4. mars 2020. " Sótt er um „æfingasvæði skotfélags. Rekstur skotíþróttavalla- og æfingasvæðis ólympískra íþróttagreina. „  Í umsókn kemur fram að starfsemin hófst árið 1995.

Upphaflega var gefið út starfsleyfi fyrir svæðið árið 2003 og endurnýjað til eins árs í september 2019.

Landspilda sem skotæfingasvæðið er á er  úr landi Óss í Hvalfjarðarsveit.  Akraneskaupsstaður á landspilduna.  Á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008 til 2020 er landsvæðið merkt sem „opið svæði til sérstakra nota“ og í greinargerð skipulags sem „ skotfimisvæði úr landi Óss“. Merkt O33 á uppdrætti.  Skotæfingasvæðið er staðsett við rætur Akrafjalls. Í nágrenni við það eru gönguleiðir upp á fjallið, skógræktarsvæði með útivistarstígum og reiðvegur.

Heilbrigðisnefnd hefur beðið eftir að landeigandi deiliskipuleggði svæðið frá því umsókn barst en af því hefur ekki orðið. Starfsleyfisumsóknin  hefur verið til umræðu á nokkrum fundum Heilbrigðisnefndar Vesturlands síðasta árið og að lokum samþykkt á fundi þann 10. febrúar s.l að auglýsa drög að leyfi sem gilda á í  4 ár. 

 Leyfið  verður gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. 

Starfsleyfisskilyrði fyrir skotfæfingasvæði ber að auglýsa í minnst 4 vikur  skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 23. apríl 2021.

Hér má sjá drög starfsleyfis ásamt greinargerð með umsókn frá Skotfélagi Akraness Skotfélag Akraness .

Fimmtudagur, 25 mars 2021 14:56

166. fundur Heilbrigðisnefndar Vesturlands

Hér er fundargerð 166. fundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands sem haldinn var í fjarfundarbúnaði mánudaginn 22. mars 2021. 166 fundur

Mánudagur, 22 mars 2021 11:46

Óhapp við flutning sóttmengaðra hræja

Þann 18. mars s.l  varð óhapp við flutning á riðusmituðum úrgangi sem flytja átti til brennslu í Kölku á Suðurnesjum.

Mikill þrýstingur af völdum gasmyndunar úr úrganginum myndaðist í einum gámnum á meðan á flutningi stóð. Þetta varð til þess að hleri á ofanverðum gámnum gaf sig og uppgötvaðist atvikið áður en komið var að Hvalfjarðargöngum.

Hér er tengill á fréttina af vef Matvælastfonunar : 

Óhapp við flutning hræja til brennslu vegna riðu | Matvælastofnun (mast.is)

Hér með eru auglýst drög að starfsleyfi til tveggja ára fyrir rekstur kjúklingabúsins  á Fögrubrekku í Hvalfjarðarsveit. 

Leyfi fyrir alifuglabú er gefið út skv.  lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998, ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit og ákvæðum reglugerðar nr. 520/2015 um eldishús alifugla, loðdýra og svína. 

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur  skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit,

Umsókn um starfsleyfi barst þann 16. mars s.l. Umsækjandi er Reykjabúið ehf, kt. 581187-2549.

Samkvæmt umsókn eru alls.."  27000 stæði fyrir kjúkling. Magn kjúklingaskíts sem fellur til er metið um 170 tonn á ári. Notaður á tún og við endurræktun þeirra... "   Með umsókninni fylgdu samningar um notkun á skít frá búinu á nágrannatún Fögrubrekku og kort af landi þar sem gert er ráð fyrir að kjúklingaskítur sé notaður á. 

Starfsleyfið fyrir kjúklingabúið á Fögrubrekku mun byggja á samræmdum starfsleyfsiskilyrðum sem gefin hafa verið út af Umhverfisstofnun.

Hér má finna umsókn Reykjabúsins ehf, samningum um notkun á skít og kort af landi til dreifingar. Umsókn Reykjabúið Fögrubrekkusamningur um dreifingu á skít og Kort af landi fyrir dreifingu

 

Athugasemdir vegna starfsleyfis skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 16. april 2021.

 

 

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir starfsemi dekkja- og smurverkstæðis á Sólbakka 25 í Borgarnesi.  Heiti verkstæðis er Gúndi GK. 

HeV gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi dekkja- bílaverkstæða. Leyfið er gefið út skv.  lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 1. febrúar 2021 og er hér um að ræða nýja starfsemi á Sólbakka 25. Gúndi verkstæði Sólbakka 25

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur  skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 26. mars 2021.

 Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi fyrir starfsemi Borgarverks ehf við meðhöndlun á asbest hitaveiturörum, þ.e leyfi fyrir að fjarlægja rörin og koma þeim til förgunar á viðurkenndum urðunarstað.  Um er að ræða hitaveiturör úr fyrrum lagnaæð Veitna ohf á svæðinu i kringum Hvanneyri og að Seleyri við Borgarfjarðarbrú. HeV bendir á að í landi Klausturtungu er farið um grannsvæði vatnsverndar og eru sérstök skilyrði sett í leyfi vegna þess. 

HeV gefur út meðfylgjandi starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlunar á asbest skv reglugerð nr. 705/2009. Leyfið er gefið út skv.  og lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Starfsleyfisskilyrði fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlar asbest  ber að auglýsa í minnst 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, www.hev.is, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018  ( viðauki X, 9.11. ) um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Hér má sjá drög að starfsleyfi fyrir starfsemina Borgarverk Asbestslögn Borgarfjörður 

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 24. mars 2021.

Page 13 of 18