Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Fimmtudagur, 19 janúar 2023 15:42

N1 ehf Grundarfirði - Bensínstöð- Auglýsing

Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi N1 ehf vegna  bensínstöðvar/sjálfsafgreiðslu á Grundargötu 38 í Grundarfirði. Umsókn barst þann 17. janúar 2023  frá N1 ehf,  kt: 411003-3370. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er Jón Viðar Stefánsson. Í umsókn er sótt um " bensínstöð, ómönnuð sjálfsafgreiðslustöð". 

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gefur út starfsleyfi sem nær til afgreiðslu eldneytis. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. Fram kemur í umsókn að eldsneytisgeymar séu tveir og eru  frá árinu 2000.  Stærð geymana er: 30 000 lítrar fyrir bensín og  20 000 lítrar fyrir díselolíu. Um er að ræða geyma með tvöfaldan þrýsting  með vökva á milli birgða. 

Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi : Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is)

Starfsleyfisskilyrði fyrir bensínafgreiðslustöðina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   fyrir 16. febrúar 2023

Read 344 times