Hér með eru auglýst drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi N1 ehf vegna bensínstöðvar/sjálfsafgreiðslu við Hraðbúðina Útnesvegi 10 á Hellissandi. Umsókn barst þann 17. janúar 2023 frá N1 ehf, kt: 411003-3370. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er Jón Viðar Stefánsson. Í umsókn er sótt um " bensínstöð, ómönnuð sjálfsafgreiðslustöð".
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands gefur út starfsleyfi sem nær til afgreiðslu eldneytis. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. Fram kemur í umsókn að eldsneytisgeymar séu tveir og eru frá árinu 2000. Stærð geymana er: 30 000 lítrar fyrir bensín og 20 000 lítrar fyrir díselolíu. Um er að ræða geyma með tvöfaldan þrýsting með vökva á milli birgða.
Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi : Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is)
Starfsleyfisskilyrði fyrir bensínafgreiðslustöðina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 16. febrúar 2023