Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Föstudagur, 22 október 2021 13:42

Bílver ehf, Innnesvegi 1, bifreiðaverkstæði - Akranes

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir bifreiðaþjónustu tengda starfsemi bílasölu á Innnesvegi 1 á Akranesi. Rekstraraðili er Bílver ehf,  kt 621297-7679.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 21. október 2021.   Í umsókn er sótt um " bifreiðaverkstæði" þar sem er almennar viðgerðir á bílum á vegum bílasölunnar og umboðsins er að ræða.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfið mun byggja á  skilyrðum fyrir mengandi starfsemi, þ.á.m reglugerð nr. 724/2008 um hávaða, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar.

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 19. nóvember  2021.

 

Uppfært 30. nóvember 2021

Drög að nýju starfsleyfi Bílvers ehf. til reksturs bifreiðaverkstæðis að Innnesvegi 1 voru auglýst á vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands þann 22. október 2021 til 30. nóvember 2021 sbr. ákvæði reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar. Um starfsemina gilda m.a. samræmd starfsleyfisskilyrði um bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur: Starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.pdf (ust.is)

Read 696 times