Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Föstudagur, 29 október 2021 12:12

TS Vélaleiga, Dalsbraut 2, Viðgerðaraðstaða á eigin vélum - Ólafsvík

Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir viðgerðaraðstöðu verktakans, TS Vélaleiga ehf,  kt 530596-2819, á eigin vélum að Dalbraut 2 í Ólafsvík.

Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt starfsleyfi barst þann 28. október 2021. Í umsókn er sótt um " viðgerðaraðstöðu fyrir eigin vélar" þar sem er almennar viðgerðir á bílum fyrirtækisins er að ræða.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfið mun byggja meðal annars á  Almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.pdf (ust.is).

Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir 25. nóvember  2021.

Heilbrigðisnefnd getur krafist þess að aðilar í atvinnurekstri sem getur valdið mengun í fráveitu komi fyrir viðunandi hreinsibúnaði á eigið fráveituvatn. Þetta getur átt við almenningsskólpveitur en þó einkum fráveituvatn sem er mengað af olíu eða eiturefnum eða mjög próteinríkt eða fituríkt fráveituvatn frá verksmiðjum eða hvers konar öðrum atvinnurekstri.

Uppfært 6. desember 2021

Drög að nýju starfsleyfi fyrir TS vélaleigu ehf. til reksturs "viðgerðaraðstöðu fyrir eigin vélar" að Dalbraut 2 voru auglýst á vefsíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands þann 28. október 2021 til 25. nóvember 2021 sbr. ákvæði reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar. Um starfsemina gilda m.a. samræmd starfsleyfisskilyrði um bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur: Starfsleyfisskilyrði fyrir bifreiðaverkstæði og skyldan rekstur.pdf (ust.is)

Read 657 times