Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemina. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um nýtt starfsleyfi barst 15. janúar 2026. Í umsókn fyrir starfstöð í Stykkishólmi er sótt um " vélsmiðju, dráttarbraut, trésmíðaverkstæði, rafmagnsverkstæði og lager" en fyrir Grundartanga rekstur Vélsmiðju. Starfsemin hófst í Stykkishólmi upphaflega árið 1906, en flutti á Nesveg 20 árið 1967. Starfsemin á Grundartanga var keypt af Stálsmiðjunni árið 2022.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Umsókn frá Skipavík :
Starfsleyfið mun byggja meðal annars á skilyrðum. Sjá hér: Starfsleyfisskilyrði fyrir málmsmiðjur.pdf og Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 8. mars 2026
