Hér með eru auglýst drög að starfsleyfi fyrir starfsemi Smurstöðvar Akraness Smiðijuvöllum 2 á Akranesi. Rekstraraðili er Birgir Karlsson - 480289-2699.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi smurstöðva. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Umsókn um endurnýjað starfsleyfi barst þann 31. ágúst 2021. Í umsókn er sótt um " smurstöð". Starfsemin sem um ræður hefur verið í rekstri í fjölda ára á þessum stað.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Starfsleyfið mun byggja á skilyrðum fyrir mengandi starfsemi og smurstöðvar, sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér:Starfsleyfisskilyrði fyrir smurstöðvar.pdf (ust.is)
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 5. október 2021.