Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

 

 

 

 

Þriðjudagur, 22 apríl 2025 14:50

Þula ehf. Þvottahús á Hamraenda 4, Stykkishólmi

Auglýsing starfsleyfis vegna mengunarvarna.

Þula ehf., kt: 660398-2369  hefur sótt um starfsleyfi fyrir rekstur þvottahúss að Hamraenda 4 í Stykkishólmi. 

Umsækjandi fyrir hönd Þulu ehf. er Valgerður Hrefna Birkisdóttir.  Heilbrigðisnefnd Vesturlands gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi þvottahúsa t skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.

Umsókn um nýtt  starfsleyfi barst þann 16. apríl 2025.  Í umsókn er sótt um " Þvottahús, þvegið lín fyrir hótel og gistiheimili ".   Staðsetning þvottahús er í nýju húsnæði, iðnaðarbili, á Hamraenda 4. 

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. 

Starfsleyfið mun byggja á almennum skilyrðum fyrir mengandi starfsemi, , sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar. Sjá hér: Almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.pdf (ust.is) 

Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.  fyrir  20. maí 2025. 

Read 20 times