Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi fyrir starfsemi Borgarverks ehf við meðhöndlun á asbest hitaveiturörum, þ.e leyfi fyrir að fjarlægja rörin og koma þeim til förgunar á viðurkenndum urðunarstað. Um er að ræða hitaveiturör úr fyrrum lagnaæð Veitna ohf á svæðinu i kringum Hvanneyri og að Seleyri við Borgarfjarðarbrú. HeV bendir á að í landi Klausturtungu er farið um grannsvæði vatnsverndar og eru sérstök skilyrði sett í leyfi vegna þess.
HeV gefur út meðfylgjandi starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlunar á asbest skv reglugerð nr. 705/2009. Leyfið er gefið út skv. og lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Starfsleyfisskilyrði fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlar asbest ber að auglýsa í minnst 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, www.hev.is, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 ( viðauki X, 9.11. ) um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Hér má sjá drög að starfsleyfi fyrir starfsemina Borgarverk Asbestslögn Borgarfjörður
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 24. mars 2021.