Auglýsing tímabundið starfsleyfi- Meðhöndlun asbests
Breytt 6. október 2020:
HeV féll frá ákvörðun um auglýsingu á starfsleyfi fyrir neðangreinda starfsemi Þrótts ehf á grunni reglugerðar nr. 705/2009. Ekki er um eiginlega meðhöndlun asbest að ræða heldur aðeins að rörin eru fjarlægð og flutt til urðunar.
Tímabundið leyfi fyrir fjarlægingunni á asbeströrum hefur verið gefið út og gildir til 5. desember 2020.
( Atvinnurekstur sem meðhöndlar asbest- Þróttur ehf.,
Hér með eru auglýst drög að tímabundnu starfsleyfi fyrir starfsemi Þróttar ehf við meðhöndlun á asbest hitaveiturörum, þ.e leyfi fyrir að fjarlægja rörin og koma þeim til förgunar á viðurkenndum urðunarstað. Um er að ræða hitaveiturör úr fyrrum lagnaæð Veitna ohf í landi Litlu Fellsaxlar og Kjalardals í Hvalfjarðarsveit.
HeV gefur út meðfylgjandi starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlunar á asbest skv reglugerð nr. 705/2009. Leyfið er gefið út skv. og lögum um hollustuhætti og mengungarvarnir nr. 7/1998.
Starfsleyfisskilyrði fyrir atvinnurekstur sem meðhöndlar asbest ber að auglýsa í minnst 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, www.hev.is, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 ( viðauki X, 9.11. ) um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Þróttur ehf - Tillaga að starfsleyfi Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skal senda skriflegar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 22. október n.k. )
Íslenska gámafélagið Stykkishólmi - Starfsleyfi auglýsing
Meðfylgjandi er auglýst eftir athugasemdum við tillögu að endurnýjuðu starfsleyfi starfsemi Íslenska Gámafélagsins við Flugvallarveg 20 í Stykkishólmi.
Starfsleyfið er fyrir sorphirðu, almenna gámaþjónustu, umhleðslu á úrgangi og jarðgerð.
Starfsleyfistillagan er auglýst í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skal senda skriflegar inn á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 29. september 2020.
Akbrautin ehf Dalbraut 16 Starfsleyfistillaga
Hér með eru auglýst drög að nýju starfsleyfi fyrir starfsemi Akbrautar ehf á Dalbraut 16 á Akranesi.
HeV gefur út starfsleyfi fyrir starfsemi bílasprautunar- og réttingaverkstæðis. Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998.
Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 18. september 2020.
Starfsleyfistillaga: Akbraut ehf
Olís Esjubraut, Akranes - Bensínafgreiðsla
Hér með eru auglýst drög að endurnýjaðu starfsleyfi fyrir starfsemi Olís á Esjubraut 45 á Akranesi.
HeV gefur út starfsleyfi sem nær til bensínafgreiðslu, verslunar og veitingareksturs. Leyfið er gefið út skv. lögum um matvæli nr 93/1995 og lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998. Núgildandi leyfi rennur út 10. júní n.k.
Starfsleyfisskilyrði fyrir bensínafgreiðslustöðina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.
Athugasemdir skulu berast á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. fyrir 10. júní 2020.
KG fiskverkun Rifi
Vignir G. Jónsson ehf. Smiðjuvöllum 4
Vignir G. Jónsson ehf., Smiðjuvöllum 4 á Akranesi
Norðanfiskur Vesturgötu 5, Akranesi
Norðanfiskur Vesturgötu 5, Akranesi.
Blikksmiðja Guðmundar Akranesi
Blikksmiðja Guðmundar Akursbraut 11b, Akranesi.
Olís Suðurgötu 10
N1-Skútan bensínstöð Þjóðbraut 9, Akranesi
Brim hf. loðnuhrognavinnsla Akranesi
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar
Into the glacier skemma
Into the Glacier þjónustuskáli og snyrtingar Geitlandi
Into the glacier skemma
Into the Glacier, verkstæði í landi Húsafells 3, starfsleyfi.