Print this page
Fimmtudagur, 28 maí 2026 13:47

Spennistöð Landsnets hf. á Brennimel Hvalfjarðarsveit. - Auglýsing á starfsleyfi

Landsnet hf.  kt: 5808042410, hefur sótt um starfsleyfi fyrir endurnýjun á starfsleyfi fyrir  spennistöð og aðveitustöð á Brennimel í Hvalfjarðarsveit.    Nils Gústavsson sækir um fyrir hönd rekstraraðila.

Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998.

Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir mengandi starfsemi :

Starfsleyfisskilyrði fyrir spennistöð og aðveitustöð ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, viðauki X., 9.kafli; grein.9.2.

Hér má finna gögn málsins : umsókn Umsókn um endurnýjun  og vinnuskjal Verkís með umsókn og viðbragðsáætlun

Athugasemdir skulu berast á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.   fyrir 25. júní 2026 

Í umsókn kemur fram að  um endurnýjun starfsleyfis er að ræða. Núgildandi leyfi var síðast gefið út 8. september 2014 og gildir til 8. september 2026. Nýr aflspennir, 160 MVA hefur verið settur upp í stað 67MVA spennis.

Búnaður á staðnum: "  3 spennar utanhúss. 160 MVA (nóv 2025 - 49 t olía), 67 MVA (ár 1979 - 33,45 t olía), 20 MVA (2012 - Rarik - 12 t olía), auk 0,63 MVA (1978 - 0,36 t olía).
2 spennar innanhúss. 10MVA (ár 2006-Rarik - 10 t olía), 20 MVA (1975 - 15,7 t olía).
Gasmagn á háspennurofum, brennisteinshexaflúoríð (SF6) er í heildina 113,9 kg, sjá yfirlit í umsókn á endurnýjun starfsleyfis og vinnuskjal."

Read 3 times