Með lagabreytingum sem taka gildi 1. janúar 2027 verða verkefni sem Heilbrigðiseftirlits Vesturlands hefur sinnt um árabil að verulegu leyti færð frá sveitarfélögum til ríkisins.
Í ljósi þess hefur heilbrigðisnefnd falið framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands að hefja formlegt ferli vegna starfsloka starfsfólks, í samræmi við gildandi lög, kjarasamninga og aðra samninga. Jafnframt fól heilbrigðisnefndin formanni að segja framkvæmdastjóra upp með sama hætti.
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands byggist á samstarfi sveitarfélaganna á Vesturlandi og Kjósarhrepps og hefur um langt skeið sinnt mikilvægum verkefnum á sviði heilbrigðiseftirlits, hollustuhátta, mengunarvarna og matvælaeftirlits á starfssvæði sínu.Heilbrigðisnefnd leggur ríka áherslu á að vel verði staðið að þessum umfangsmiklu breytingum og að hagsmunir starfsfólks verði hafðir að leiðarljósi í því ferli sem nú tekur við. Starfsfólk Heilbrigðiseftirlits Vesturlands býr yfir mikilli reynslu og sérþekkingu sem hefur byggst upp á löngum tíma og nefndin telur mikilvægt að þekking nýtist áfram við eftirlit og þjónustu á Vesturlandi.
Heilbrigðisnefnd Vesturlands vill við þessi tímamót færa framkvæmdastjóra og starfsfólki Heilbrigðiseftirlits Vesturlands innilegar þakkir fyrir þeirra mikilvæga og faglega starf í þágu íbúa sveitarfélaga.