Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir eftir athugasemdum við umsókn um breytt starfsleyfi fyrir starfsemi Brims hf á Akranesi vegna loðnuhrognavinnslu á Hafnarbraut 3. Breytingin felst í stórum dráttum í því að búið er að gera nýja frárennslislögn frá húsnæði fyrirtækisins á Hafnarbraut 3 (Heimaskagahús) sem tengist núverandi fráveitulögn fiskimjölsverksmiðju sem liggur út fyrir Heimaskagakletta og út í sjó.
Starfsleyfistillagan er auglýst í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skal senda skriflegar inn á netfangið
Hér má finna gögn vegna umsóknarinnar um breytta útfærslu fráveitunnar, þ.e kort af svæðinu, umsókn frá fyrirtækinu frá 28. janúar 2021, starfsleyfi sem gefið var út í janúar 2020 og samantekt í texta um breytt ákvæði starfsleyfis.
